|
Með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur uppkveðnum þann 7. ágúst 2009 var félagið SPRON verðbréf hf., kt. 670505-1970, tekið til slita í samræmi við 3. tl. 1. mgr. 101. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki þar sem ekki var talið sennilegt að greiðsluörðugleikar þess myndu líða hjá innan skamms tíma.
Frestdagur er 31. júlí 2009, sbr. 5. mgr. 101. gr. laga nr. 161/2002.
Hér með er skorað á alla þá sem telja til hvers kyns skulda eða annarra réttinda á hendur SPRON verðbréfum hf. eða eigna í umráðum félagsins, að lýsa kröfum sínum skriflega fyrir slitastjórn félagsins innan fjögurra mánaða frá fyrri birtingu þessarar innköllunar. Kröfulýsingar skulu hafa borist slitastjórn innan fyrrgreinds tímamarks og skal efni þeirra vera í samræmi við fyrirmæli 2. og 3. mgr. 117. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991.
Kröfulýsingar skulu sendar til:
Slitastjórn SPRON verðbréfa hf.
Lágmúla 6.
108 Reykjavík.
Því er beint til kröfuhafa að í kröfulýsingu komi fram sundurliðuð fjárhæð kröfu þann 7. ágúst 2009. Kröfum í erlendri mynt skal lýst í viðkomandi mynt. Kröfuhöfum frá aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins eða Fríverslunarsamtaka Evrópu er heimilt að lýsa kröfum á tungumáli heimalands síns. Slíkum kröfulýsingum skal fylgja íslensk þýðing en þó er heimilt að lýsa kröfu á ensku án þess að þýðing fylgi. Aðrir kröfuhafar geta lýst kröfum sínum á íslensku eða ensku.
Sé kröfum ekki lýst innan framangreinds frests gilda um það sömu réttaráhrif og um vanlýsingu kröfu skv. 118. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991 og telst hún því fallin niður gagnvart SPRON verðbréfum hf. nema undantekningar í 1. – 6. tölulið lagaákvæðisins eigi við.
Sérstaklega er áréttað að með því að lýsa kröfu sinni telst kröfuhafi hafa fallist á brottfall þagnarskyldu (bankaleyndar) að því er varðar viðkomandi kröfu.
Hér með er boðað til kröfuhafafundar og verður hann haldinn föstudaginn 12. febrúar 2010 kl. 14:00 að Lágmúla 6, 108 Reykjavík. Rétt til setu á fundinum eiga þeir sem lýst hafa kröfu á hendur félaginu. Á fundinum verður fjallað um skrá yfir lýstar kröfur og afstöðu slitastjórnar að því leyti sem hún liggur fyrir. Skrá yfir lýstar kröfur verður aðgengileg þeim sem lýst hafa kröfum á hendur félaginu að minnsta kosti viku fyrir framangreindan fund.
Nánari upplýsingar um kröfulýsingar og meðferð krafna munu gerðar aðgengilegar á heimasíðu félagsins, www.spron.is. Slitastjórn beinir eftirtöldum tilmælum til kröfuhafa:
a) Að upplýsa um tölvupóstfang sitt eða umboðsmann sinn í kröfulýsingu til að auðvelda miðlun upplýsinga.
b) Að tilgreina bankareikning til að auðvelda útgreiðslu, þegar og ef til hennar kemur.
c) Að lýsa kröfum sem fyrst eftir birtingu innköllunar.
Reykjavík 24. ágúst 2009.
Slitastjórn SPRON verðbréfa hf.,
Hildur Sólveig Pétursdóttir hrl.
Hlynur Jónsson hdl.
Jóhann Pétursson hdl.
|