Lífeyrissparnaður
Byr annast viðbótarlífeyrissparnað SPRON og nb.is
Yfirfærslan er viðskiptavinum að kostnaðarlausu
Fjármálaeftirlitið hefur veitt samþykki fyrir því að Byr sparisjóður verði vörsluaðili viðbótarlífeyrissparnaðar fyrrum viðskiptavina SPRON og nb.is. Færist sparnaðurinn sjálfkrafa til Byrs, þeim að kostnaðarlausu, hálfum mánuði eftir að þeim berst kynningarbréf þess efnis. Það verður sent út næstu daga.
Samkvæmt samningi við slitastjórn SPRON og nb.is mun Byr annast ávöxtun á verðtryggðum sparnaði ásamt þjónustu við viðskiptavini en Íslensk verðbréf (ÍV) munu sjá um stýringu á verðbréfatengdum eignum. Slitastjórnin gekk til samninga við Byr og ÍV að undangengnu útboði. Félagið Íslensk verðbréf var stofnað árið 1987 og sérhæfir það sig í eignastýringu fyrir fjárfesta, stóra og smáa. Lífeyrissjóðir eru meðal stærstu viðskiptavina en heildareignir í stýringu hjá ÍV nema nú um 90 milljörðum króna.
Eins og áður sagði mun viðbótarlífeyrissparnaður SPRON og nb.is færast sjálfkrafa til Byrs tveimur vikum eftir að viðskiptavinum berst kynningarbréf þess efnis nema þeir óski annars. Viðbótarlífeyrissparnaðurinn færist til Byrs, sjóðsfélögum að kostnaðarlausu.
Eigendur viðbótarlífeyrissparnaðar SPRON og nb.is geta þeir nú fengið alla þjónustu vegna sparnaðar síns í heimabanka Byrs. Þeir sem ekki hafa haft aðgang geta nálgast notandanafn og lykilorð í heimabanka undir rafrænum skjölum. Þá veita þjónustufulltrúar útibúa sparisjóðsins allar frekari upplýsingar. Senda má fyrirspurnir vegna lífeyrissparnaðar á netfangið byr@byr.is eða hafa samband við ráðgjafa í síma 575-4000.
Innborganir iðgjalda
Byr sparisjóður hefur tekið við vörsluhlutverki á viðbótarlífeyrissparnaði SPRON/Netbankans . Launagreiðendur geta því hér eftir greitt iðgjöld starfsmanna sinna inn á nýjan reikning hjá Byr sparisjóði.
Viðbótarlífeyrissparnaður Byrs
Iðgjaldaskráning - Túngötu 3
580 Siglufjörður
Netfang: skilagreinar@arion.is
Fax: 460-1919
- Reikningsnúmer: 1133-26-900770
- Kennitala viðtakenda: 610269-2229
- Lífeyrissjóðsnúmer: 770
Fylgst verður með gömlu iðgjaldareikningunum áfram í skamma stund en við biðjum ykkur vinsamlegast um að breyta iðgjaldareikningi sem allra fyrst.