Skilanefnd / bráðabirgðastjórn

Þann 21. mars sl. vék Fjármálaeftirlitið stjórn SPRON frá og skipaði skilanefnd yfir bankann. Um leið fól Fjármálaeftirlitið Nýja Kaupþing Banka hf. að annast innlánsskuldbindingar bankans skv. nánari lýsingu, sjá hér. Með lögum nr. 44/2009 um breytingar á lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var skilanefnd breytt í bráðabirgðastjórn, sem hefur sömu hlutverkum að gegna og skilanefnd.

Slitastjórn

Í júní sl. rann skeið bráðabirgðastjórnar á enda, í samræmi við 100. gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Þann 23. júní sl. féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á beiðni bráðabirgðastjórnar SPRON um skipun slitastjórnar. Hlutverk slitastjórnar er að gæta hagsmuna kröfuhafa SPRON með því að gæta að eignum félagsins og hámarka verðmæti þeirra, og annast m.a. innköllun til kröfuhafa í samræmi við 2. mgr. 102. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Yfirlýsing SPRON vegna niðurstöðu Hæstaréttar í málum vegna gengistryggðra bílalána.

18.6.2010

Slitastjórn SPRON mun fara vandlega yfir dómsniðurstöðu Hæstaréttar vegna gengistryggðra bílalána og fylgjast með þeim skrefum sem stjórnvöld og Alþingi hyggjast taka í málinu á næstu dögum. SPRON áréttar að hann var ekki aðili málsins og gerði ekki samninga sambærilega við þá sem voru til meðferðar í framangreindum Hæstaréttardómum. Niðurstaðan hefur því takmarkað fordæmisgildi hvað varðar lánasamninga bankans. Ennfremur er því ósvarað hvernig fara skuli með lán þar sem gengistrygging telst ólögleg, enda var það álitaefni ekki lagt fyrir Hæstarétt. Vakin er athygli á því að nú þegar eru rekin nokkur dómsmál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur varðandi lögmæti lánasamninga sem eru sambærilegir samningum bankans. Þess er að vænta að niðurstaða Hæstaréttar í þeim málum geti legið fyrir á þessu ári. Í þessum málum hefur það álitaefni verið lagt fyrir dóminn hvernig fara skuli með verðtryggingarþátt samninganna teljist þeir fela í sér ólögmæta gengistryggingu. Sú varakrafa hefur verið gerð í málunum að þá beri að meðhöndla lánin eins og þau hefðu verið íslensk lán frá upphafi, verðtryggð eða óverðtryggð, og njóti þá sambærilegra kjara og lántakendum slíkra lána buðust.

Bankinn leggur mikla áherslu á að greiða úr vanda fólks sem glímir við erfiða greiðslubyrði og hvetur lántakendur til að kynna sér þau fjölmörgu úrræði sem bankinn býður til þess að gera fólki kleyft að standa í skilum. Viðskiptavinir SPRON geta sótt um úrræðin í útibú Arion banka.

Þangað til niðurstaða liggur fyrir af hálfu Hæstaréttar eða löggjafans, mun bankinn nú sem endranær koma til móts við viðskiptavini sína. Hefur bankinn því ákveðið að bjóða lántakendum með erlend lán það úrræði að greiða kr. 5.500,- fyrir hverja upphaflegu milljón lánsins og halda þannig lánum sínum í skilum miðað við upphaflega fjárhæð lánsins.

Loks vill SPRON árétta að viðskiptavinir sem nýta sér einhver þeirra fjölmörgu úrræða sem bankinn býður munu ávallt njóta betri réttar sem niðurstaða Hæstaréttar eða löggjafans kann að leiða til.

Slitastjórn SPRON


Þann 7. júlí 2010 var gerð sú breyting á ofangreindri yfirlýsingu að upphæð fastrar greiðslu miðast kr. 5.000 af hverri upphaflegri milljón láns.
Sjá nánar hér.

Skrifstofa slitastjórnar SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankans er að Lágmúla 6, Reykjavík. Skrifstofan er opin frá 11:00 til 15:00. Aðalsími 540 5000 opinn 10:00-12:00 og 13:00-15:00.

Öll þjónusta vegna innlána og útlána er hjá útibúum Arion banka.

Beiðni um opnun á geymsluhólfi má senda á netfangið infout@spron.is