Skilanefnd / bráðabirgðastjórn

Þann 21. mars sl. vék Fjármálaeftirlitið stjórn SPRON frá og skipaði skilanefnd yfir bankann. Um leið fól Fjármálaeftirlitið Nýja Kaupþing Banka hf. að annast innlánsskuldbindingar bankans skv. nánari lýsingu, sjá hér. Með lögum nr. 44/2009 um breytingar á lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var skilanefnd breytt í bráðabirgðastjórn, sem hefur sömu hlutverkum að gegna og skilanefnd.

Slitastjórn

Í júní sl. rann skeið bráðabirgðastjórnar á enda, í samræmi við 100. gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Þann 23. júní sl. féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á beiðni bráðabirgðastjórnar SPRON um skipun slitastjórnar. Hlutverk slitastjórnar er að gæta hagsmuna kröfuhafa SPRON með því að gæta að eignum félagsins og hámarka verðmæti þeirra, og annast m.a. innköllun til kröfuhafa í samræmi við 2. mgr. 102. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Vegna umfjöllunar fréttastofu RÚV og fréttastofu Stöðvar 2

18.2.2010

Að gefnu tilefni – vegna umfjöllunar fréttastofu RÚV og fréttastofu Stöðvar 2.

 

Slitastjórn SPRON telur nauðsynlegt að koma eftirfarandi á framfæri í ljósi umfjöllunar fréttastofu Stöðvar 2 þann 13. og 14. febrúar sl., einkum þar sem fréttastofa RÚV nýtir þær fréttir sem ábyggilega heimild.

 

Skipun slitastjórnar

Þann 21. mars 2009 tók Fjármálaeftirlitið yfir vald hluthafafundar og vék stjórn SPRON frá störfum. Í kjölfarið skipaði Fjármálaeftirlitið skilanefnd sem tók við öllum heimildum stjórnar SPRON og fer með málefni hennar. Fjármálaeftirlitið skipaði Hlyn Jónsson sem formann skilanefndar. Auk hans voru fjórir aðrir aðilar skipaðir í nefndina. Stuttu síðar var skilanefnd breytt í bráðabirgðastjórn.

 

Þann 23. júní sl. skipaði Héraðsdómur Reykjavíkur SPRON slitastjórn. Hlynur Jónssonur var skipaður formaður slitastjórnar. Auk hans voru Hildur Sólveig Pétursdóttir hrl. og Jóhann Pétursson hdl. skipuð í stjórnina.

 

Hlutverk slitastjórnar

Slitastjórnum fjármálafyrirtækja er ætlað ákveðið lögbundið hlutverk. Samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki tekur slitastjórn við þeim réttindum og skyldum sem stjórn fyrirtækisins og hluthafafundur hafði á hendi. Slitastjórn er einnig ætlað að gæta að eignum félagsins og hámarka verðmæti þeirra. Um störf slitastjórna gilda í flestum tilfellum sömu reglur og eiga við um skiptastjóra við gjaldþrotaskipti.

 

Slitastjórn sinnir mörgum umfangsmiklum og oft flóknum verkefnum. Þjónusta við viðskiptavini, úrræði fyrir skuldara, lögfræðileg verkefni af ýmsu tagi, umsýsla eigna og samskipti við kröfuhafa eru meðal helstu verkefna slitastjórnar. Það skal tekið fram að fyrirkomulag við slitastjórn SPRON er um margt frábrugðið viðskiptabönkunum, en í tilviki SPRON fer slitastjórn með rekstur og verkefni sem skilanefnd og slitastjórn viðskiptabankanna fara með hvort í sínu lagi.  Eðlilega er ekki gert ráð fyrir því að slitastjórn ein og sér sinni öllum þeim verkefnum sem henni eru falin lögum samkvæmt.

 

Í umfjöllun Stöðvar 2 hefur komið fram að einstökum verkefnum sé sinnt af starfsmönnum lögmannsstofu í eigu  meðlima slitastjórnar og gefið er í skyn að sú framkvæmd sé óeðlileg. Eins og fram hefur komið hefur slitastjórn sambærilega réttarstöðu og skiptastjóri í þrotabúi og í lögum um gjaldþrotaskipti er gert ráð fyrir því að slitastjórn sé heimilt á kostnað félagsins að leita sér aðstoðar eða þjónustu til að leysa af hendi einstök verk á sína ábyrgð. Slitastjórn ber endanlega ábyrgð á þeim verkefnum sem hún sinnir. Er því eðlilegt að hluti þeirra verkefna sé unnin af starfsfólki á lögmannsstofu í eigu meðlima í slitastjórn, starfsfólks sem þegar er á þeirra ábyrgð í gegnum vinnuréttarsamband. Löng hefð er fyrir slíkri ráðstöfun hér á landi, bæði hvað varðar skiptastjóra í þrotabúum og fyrirtæki í slitameðferð, sérstaklega þegar um er að ræða stór og umfangsmikil félög.   Það skal tekið fram að í fjölmörgum tilvikum hefur verið leitað til annarra lögmannsstofa, allt eftir eðli og umfangi verks.  Þá starfar einnig sérstök lögfræðideild innan Dróma hf. sem sinnir margvíslegum lögfræðilegum verkefnum sem tengjast beint umfangsmikilli lánaumsýslu félagsins.

 

Ranghermi

Sem eðlilegt er hafa ofangreindar lögmannsstofur gert slitastjórn SPRON og Frjálsa fjárfestingabankans reikninga fyrir veitta þjónustu. Ranghermt er hins vegar að reikningarnir séu gefnir út af einkahlutafélaginu Nýsúlu.  Það félag hefur aldrei gefið út reikning til slitastjórnar. Þrátt fyrir ábendingar hefur fréttastofa Stöðvar 2 látið undir höfuð leggjast að leiðrétta rangar fullyrðingar sínar.  Í þrota – og slitabúum er skiptastjóri eða slitastjórn ein bær til að samþykkja reikninga og getur ekki velt þeirri ábyrgð yfir á aðra.

 

Drómi hf.

Í umfjöllun Stöðvar 2 var enn fremur látið í veðri vaka að félagið Drómi hf. sé eitthvað annað en það er og að óeðlilegt sé að slitastjórn sitji í stjórn þess félags. Hið rétta er að í áðurnefndri ákvörðun Fjármálaeftirlitsins frá 21. mars 2009 fólst að aðgerðir varðandi SPRON yrðu framkvæmdar á þann hátt að stofnað yrði sérstakt hlutafélag í eigu SPRON sem tæki við öllum eignum, tryggingaréttindum og ákveðnum skuldbindingum SPRON. Það félag hefur hlotið nafnið Drómi hf. og var stofnað í kjölfar ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins. Er félaginu eingöngu ætlað að sinna því hlutverki sem ákvörðunin kveður á um.

 

Eins og hér hefur komið fram er meðal hlutverka slitastjórnar að gæta að eignum SPRON og hámarka verðmæti þeirra. Slitastjórn SPRON getur ekki sinnt því hlutverki af fullum þungum nema hún hafi fulla yfirsýn yfir dótturfélag SPRON sem annast eignir þess, þ.e. Dróma hf., og verður það best gert með því að slitastjórn eigi einnig sæti í stjórn þess félags. SPRON og Drómi hf. eru því óaðskiljanleg félög í því ferli sem SPRON er í.

 

Dótturfélög SPRON

Rétt er að benda á að talið var nauðsynlegt að sömu aðilar sætu í slitastjórn annarra dótturfélaga í eigu SPRON, þ.e. Frjálsa Fjárfestingarbankans hf. og SPRON verðbréfa hf. Skipaði Héraðsdómur Reykjavíkur því sömu aðila í slitastjórnir þessara félaga. Þessi skipan er augljóst hagræði. Einnig er nauðsynlegt að slitastjórn SPRON hafi heildaryfirsýn yfir samstæðuna til þess að hægt sé að greiða úr málefnum félaganna. Þykir eðlilegt að slitastjórn í fjármálafyrirtæki hafi heildaryfirsýn yfir þau félög sem tilheyra móðurfélaginu. Fyrirkomulagið er einnig kostnaðarsparandi og er til þess fallið að koma í veg fyrir tvíverknað.

 

Kostnaður

Vegna fyrirspurna um áætlaðan kostnað skilanefndar og slitastjórnar SPRON hefur  kröfuhöfum verður gerð grein fyrir áætluðum kostnaði í sérstökum kröfuhafaskýrslum og hafa engar athugasemdir komið fram við hann.  Fyrsti  kröfuhafafundur SPRON verðurhaldinn  í mars næstkomandi en þá ber lögum samkvæmt að gera kröfuhöfum grein fyrir þeim kostnaði.

 

17. febrúar 2010
Slitastjórn SPRON 


Skrifstofa slitastjórnar SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankans er að Lágmúla 6, Reykjavík. Skrifstofan er opin frá 11:00 til 15:00. Aðalsími 540 5000 opinn 10:00-12:00 og 13:00-15:00.

Öll þjónusta vegna innlána og útlána er hjá útibúum Arion banka.

Beiðni um opnun á geymsluhólfi má senda á netfangið infout@spron.is