Skilanefnd / bráðabirgðastjórn

Þann 21. mars sl. vék Fjármálaeftirlitið stjórn SPRON frá og skipaði skilanefnd yfir bankann. Um leið fól Fjármálaeftirlitið Nýja Kaupþing Banka hf. að annast innlánsskuldbindingar bankans skv. nánari lýsingu, sjá hér. Með lögum nr. 44/2009 um breytingar á lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var skilanefnd breytt í bráðabirgðastjórn, sem hefur sömu hlutverkum að gegna og skilanefnd.

Slitastjórn

Í júní sl. rann skeið bráðabirgðastjórnar á enda, í samræmi við 100. gr. a. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Þann 23. júní sl. féllst Héraðsdómur Reykjavíkur á beiðni bráðabirgðastjórnar SPRON um skipun slitastjórnar. Hlutverk slitastjórnar er að gæta hagsmuna kröfuhafa SPRON með því að gæta að eignum félagsins og hámarka verðmæti þeirra, og annast m.a. innköllun til kröfuhafa í samræmi við 2. mgr. 102. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.

Lifeyrissparnaður - Spurt og svarað

30.3.2009

Hvað verður um séreignarsparnaðinn minn hjá SPRON?
Lífeyrissparnaðurinn er ennþá hjá SPRON.  Inngreiðslur á lífeyrisleiðir hafa frá því október farið inn á  verðtryggða innlánsreikninga innan leiðanna.

Hvar get ég fengið uppgefna stöðu yfir séreignarsparnaðinn minn hjá SPRON?
Ekki er hægt að veita upplýsingar um stöðu eða aðrar upplýsingar um viðbótarlífeyrissparnað eins og er, en fyrirspurnum sem sendar eru á netfangið lifspar@spron.is verður svarað eins fljótt og unnt er og þegar nánari upplýsingar liggja fyrir.

Hvernig verður fyrirframgreiðslu vegna séreignarsparnaðar háttað?
Þeir sem óska eftir fyrirframgreiðslu á viðbótarlífeyrissparnaði geta komið í Lágmúla 6 (afgreiðsla Frjálsa fjárfestingarbankans) og fyllt út viðeigandi eyðublað. Fyrirframgreiðsla séreignasparnaðar á sér stað 20. hvers mánaðar vegna beiðna sem berast fyrir 5. hvers mánaðar.

Hvernig eiga launagreiðendur að greiða inn á séreignarsparnað SPRON?
Innborganir á iðgjöld eru með sama hætti og áður, utan að bankanúmer innleggsreiknings hefur breyst úr 1149 í 333;

SPRON Lífeyrissparnaður
Iðgjaldaskráning - Túngötu 3
580 Siglufjörður

Netfang: skilagreinar@arion.is
Fax: 460-1919

  • Reikningsnúmer:  333-26-900770
  • Kennitala viðtakenda: 540502-2770
  • Lífeyrissjóðsnúmer: 770

 

Skrifstofa slitastjórnar SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankans er að Lágmúla 6, Reykjavík. Skrifstofan er opin frá 11:00 til 15:00. Aðalsími 540 5000 opinn 10:00-12:00 og 13:00-15:00.

Öll þjónusta vegna innlána og útlána er hjá útibúum Arion banka.

Beiðni um opnun á geymsluhólfi má senda á netfangið infout@spron.is