FRÉTTATILKYNNING 7. júlí 2010
SPRON og Frjálsi fjárfestingarbankinn riðu á vaðið þann 18. júní sl. með úrræði fyrir lántakendur með lán í erlendri mynt þar sem lántakendum var boðið að greiða kr. 5.500.- á mánuði fyrir hverja upphaflegu milljón lána sinna. Því er fagnað að önnur fjármálafyrirtæki hafi nú ákveðið að fylgja þessu fordæmi. Að sjálfsögðu munu SPRON bjóða lántakendum sínum þá útfærslu úrræðisins sem nú býðst öðrum lántakendum, þ.e. að greiða kr. 5.000.- á mánuði fyrir hverja upphaflegu milljón.
Þá er vakin athygli á því að ofangreind úrræði SPRON eru ekki bundin við íbúðalán heldur býðst einnig fyrirtækjum að nýta sér þau að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
SPRON viðskiptavinir geta sótt um framangreint úrræði í útibúum Arion banka.
Með þessum úrræðum vill slitastjórn SPRON koma til móts við lántakendur á meðan álitaefni varðandi erlend lán eru til lykta leidd fyrir dómstólum.
Slitastjórn SPRON leggur mikla áherslu á að greiða úr vanda viðskiptavina sem glíma við erfiða greiðslubyrði og hvetur þá til að kynna sér þau fjölmörgu úrræði sem bankinn býður til þess að gera þeim kleyft að standa í skilum, en allar nánari upplýsingar er að finna hér á vefnum.Viðskiptavinir sem nýta sér einhver þeirra fjölmörgu úrræða sem bankinn býður munu ávallt njóta betri réttar sem niðurstaða Hæstaréttar eða löggjafans kann að leiða til.
Slitastjórn SPRON
Nánar um fastar greiðslur
- Útibú Arion banka taka við beiðnum um fastar greiðslur lána SPRON og nb.is-sparisjóðs í erlendri mynt.
- Upphæð fastrar greiðslu af lánum sem eru með fimm ár eða lengur eftir af lánstímanum miðast við kr. 5.000 á mánuði af hverri upphaflegri lánaðri milljón kr.
- Upphæð fastrar greiðslu af lánum sem eru með styttri tíma en fimm ár eftir af lánstímanum miðast við kr. 15.000 á mánuði af hverri upphaflegri lánaðri milljón kr.
- Fastar greiðslur af lánum fyrirtækja miðast við að greiðslan sé ekki lægri en greiðsla afborgana og vaxta í upphafi.
- Hægt er að óska eftir að vanskilum sé bætt við höfuðstól lánsins. Almennt skilyrði er að lánið sé ekki komið í lögfræðiinnheimtu. Ef lánið er komið í lögfræðiinnheimtu þarf sérstakt samþykki fyrir skilmálabreytingu.
- Fastar greiðslur gilda til og með desember 2010 með möguleika á framlengingu samkvæmt ákvörðun bankans þar til niðurstaða liggur fyrir af hálfu Hæstaréttar eða löggjafans varðandi lánasamninga bankans.
- Það úrræði sem hefur verið í boði að lækka höfuðstól erlendra lán við breytingu yfir í íslenskar krónur verður áfram í boði út árið 2010.