Héraðsdómur Reykjavíkur hefur með skömmu millibili kveðið upp tvo dóma sem varða gengistryggingu bílasamninga en niðurstöður þeirra eru ósamrýmanlegar. Báðum dómum hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar sem fella mun endanlegan úrskurð og þá kemur í ljós hvor túlkunin verður ofan á. Þangað til eru samningar í fullu gildi.
Vegna úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur frá 12. febrúar, þess efnis að grundvöllur verðtryggingar í bílasamningi málsaðila (svokölluð gengistrygging) sé í andstöðu við VI. kafla laga 38/2001, um vexti og verðtryggingu, vill slitastjórn SPRON taka fram að þeir sem nýtt hafa sér einhver af greiðsluvandaúrræðum bankans, hafa ekki með því fyrirgert rétti sínum til leiðréttinga á lánum komist Hæstiréttur að sömu niðurstöðu.